Páll vísar bólusetningarsögum á bug

Páll Matthíasson, forstjóri LSH.
Páll Matthíasson, forstjóri LSH. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, tekur fyrir allar sögusagnir um að stjórnendur Landspítalans hafi verið bólusettir þvert á tilmæli um forgangsröðun sóttvarnarlæknis í forstjórapistli sínum sem birtist á vef spítalans.

Varðandi bólusetningar segir Páll að það sama gildi um Jón og séra Jón. „Ég vil sérstaklega taka fram, vegna sögusagna um annað, að forstjóri og framkvæmdastjórn eða aðrir stjórnendur spítalans hafa ekki verið bólusettir fyrir COVID-19. Undantekningar frá þessu eru auðvitað þær ef fólk sinnir einnig beinum sjúklingasamskiptum í framlínu og tilheyrir þannig þegar skilgreindum forgangshópum. Við hin bíðum róleg þar til að okkur kemur, í þeirri vissu að framar okkur í röðinni er sannarlega fólk sem þarf meira á bólusetningu að halda,“ segir Páll í pistlinum.

Starfsfólk óskað eftir bólusetningu

Bendir hann jafnfram á að fulltrúar farsóttarnefndar spítalans hafi á undanförnum vikum fengið fjölda rökstuddra óska um að ákveðinr hópar innan spítalans þurfi að ganga fyrir öðrum í bólusetningu. Segist Páll skilja það vel að stjórnendur spítalans beri hag starfsfólks fyrir brjósti og vilji verja sem best þá þjónustu sem er veitt. „Þótt ég skilji vel að fólk óttist það að sýkjast þá verðum við öll að virða forgangsröðun sem sett hefur verið fram. Eftir því sem bóluefni berst til landsins þá verða landsmenn bólusettir og þar er fylgt þeirri forgangsröðun sem liggur fyrir,“ segir Páll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert