Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti 127 sjúkraflutningum síðasta sólarhringinn. Af þeim voru 17 forgangsflutningar og níu í tengslum við Covid-19.
Að sögn varðstjóra í slökkviliðinu var aðeins eitt útkall á dælubíla en það var vegna elds í ruslagámi við Miðvang í Hafnarfirði.