Umferð um hluta Hafnargötu bönnuð

Óviðeigandi umferð verður bönnuð á svæðinu þar sem stóra skriðan …
Óviðeigandi umferð verður bönnuð á svæðinu þar sem stóra skriðan féll í desember. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Öll umferð um svæðið Hafnargötu á Seyðisfirði, þar sem stóra skriðan féll í desember, verður óheimil þangað til  rýmingu í bænum verður aflétt. Þetta kemur fram í facebookfærslu frá lögreglustjóranum á Akureyri og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Í gærkvöldi voru ákveðin svæði bæjarins rýmd vegna úrkomuspár og skriðuhættu, rýming gildir fram á sunnudagsmorgun en þá verður staðan metin að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert