Forval hjá VG í höfuðborginni

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra eru báðar þingmenn …
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra eru báðar þingmenn VG í Reykjavík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vinstri græn í Reykjavík ákváðu einróma á félagsfundi í kvöld að viðhafa rafrænt forval fyrir komandi Alþingiskosningar 25. september.

Reykjavíkurkjördæmi heldur sameiginlegt forval fyrir bæði kjördæmin og kosið verður í átta efstu sætin, sem þýðir fjögur efstu í hvoru kjördæmi, Reykjavík norður og Reykjavík suður, að því er fram kemur í tilkynningu.

Áður höfðu Vinstri græn í Norðaust­ur­kjör­dæmi, Suður­kjör­dæmi og Suðvesturkjördæmi ákveðið for­val, svo þetta er fjórða kjör­dæmið, þar sem VG vel­ur for­val sem aðferð.

Kjörstjórn var kosin á fundinum sem fær  það verkefni að skipuleggja og útfæra forvalið. Forvalið stendur í nokkra daga og hægt verður að kjósa hjá skrifstofu VG fyrir þá sem það vilja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert