Bíða meðferðar eftir kórónuveirusýkingu

Reykjalundur býður upp á endurhæfingu vegna kórónuveirunnar.
Reykjalundur býður upp á endurhæfingu vegna kórónuveirunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alls hafa 25 einstaklingar lokið sérstakri endurhæfingarmeðferð á Reykjalundi fyrir þá sem etja við langvarandi einkenni vegna kórónuveirusýkingar.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Miðflokksins, um fjölda sýkinga og andláta af völdum kórónuveirunnar.

Segir þar að 29 séu í meðferðinni á Reykjalundi núna. Fyrr á þessu ári voru 30 einstaklingar á biðlista eftir að komast í endurhæfingarmeðferðina.

Erfitt að áætla þörfina

Bent er á að mjög erfitt sé að áætla hversu margir muni þurfa á endurhæfingu að halda eftir að hafa sýkst af veirunni.

„Ætla má að aðeins hluti þeirra sem sýkst hafa af veirunni og glíma við langvarandi einkenni hafi leitað eftir endurhæfingu á Reykjalundi,“ segir í svarinu.

Stofnuninni hafi borist beiðnir frá 70 einstaklingum af þeim u.þ.b. 1.900 einstaklingum sem lokið höfðu einangrun vegna kórónuveirusmits í september á síðasta ári, eða um 4%.

Um síðustu áramót höfðu 5.130 lokið einangrun. Ef áætlað er að 4% þeirra eigi eftir að leita til Reykjalundar eru það um 120 einstaklingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert