Heimsfundur gegn kynferðisofbeldi í Hörpu

Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa við Austurhöfnina í Reykjavík.
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa við Austurhöfnina í Reykjavík. Ljósmynd/Júlíus Sigurjónsson

Alþjóðleg kvennasamtök sem berjast gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni halda heimsfund í Hörpu 16.-18. ágúst undir yfirskriftinni „Reykjavík Dialogue, renewing activism to end violence against women“.

Ríkisstjórnin samþykkti á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars 2020, að styrkja fundinn. Þá hefur Reykjavíkurborg einnig samþykkt að styðja við fundinn, að því er kemur fram í tilkynningu.

„Kynferðislegt og kynbundið ofbeldi er skýrasta birtingarmynd misréttis og bæði orsök þess og afleiðing. Barátta kvennahreyfingarinnar og samstarf hennar við samtök víða um heim hefur sannarlega verið íslensku samfélagi til heilla. Þessi fundur er liður í sameiginlegri baráttu okkar til að uppræta hvers kyns kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni gegn konum og stúlkum í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í tilkynningu.

Heimsfundur af þessum toga var síðast haldinn í Brighton á Englandi 1996, ári eftir að Peking-yfirlýsingin um kynjajafnrétti var samþykkt á fjórðu kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.

Árið 1976 höfðu samtök kvennahreyfingarinnar komið saman til baráttufundar í Brussel þegar alþjóðlega ráðstefnan International Tribunal on Crimes against Women var haldin við upphaf kvennaáratugar Sameinuðu þjóðanna. Núna 25 árum síðar þykir við hæfi að kvennasamtök komi saman og taki þátt í umræðu um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi gegn konum á alþjóðavettvangi.

Alþjóðleg verkefnisstjórn með þátttöku fulltrúa hvaðanæva að skipuleggur dagskrá fundarins og eru Stígamót fulltrúar Íslands. Í tengslum við fundinn verður haldin ráðstefna sem skipulögð er í samstarfi við forsætisráðuneytið og Rannsóknastofu í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands.

Viðburðunum verður streymt og verður þátttaka í Hörpu háð þróun heimsfaraldurs Covid-19.

Nánari upplýsingar má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert