Skipakomum fækkaði um 25%

Engin stór skemmtiferðaskip komu til Reykjavíkur í fyrra.
Engin stór skemmtiferðaskip komu til Reykjavíkur í fyrra. AFP

Gríðarleg fækkun var á skipakomum til Faxaflóahafna árið 2020, borið saman við árin á undan. Heimsfaraldur kórónuveirunnar hafði þessi áhrif.

Fram kemur í frétt á heimasíðu Faxaflóahafna að skipakomur voru alls 1.106 í fyrra. Árið 2019 voru skipakomur 1.378. Fækkunin milli ára er 272 skipakomur eða 25%.

Samdráttur í skipakomum varð á eftirfarandi tegundum skipa: Flutningaskip (13%), fiskiskip (12%), farþegaskip (96%), rannsóknar- og varðskip (37%). Hins vegar var fjölgun á skipakomum annarra skipa (42%), sem og tankskipa (21%), að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert