Kolbeinn gefur kost á sér í Suðurkjördæmi

Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður VG.
Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður VG. Magnus Fröderberg/Norden.org

Kolbeinn Óttarsson Proppé hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. sæti á lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi, í því forvali sem fram undan er. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kolbeini. 

„Ég hef setið á þingi fyrir VG síðan 2016, í Reykjavíkurkjördæmi suður, en hugurinn stefnir nú í Suðurkjördæmi. Þar liggja ættir mínar, fyrst og fremst í uppsveitum Árnessýslu, ófáar stundirnar hef ég átt í Þjórsárdal þar sem mín ætt hefur búið í um eina og hálfa öld, fyrst hjá ömmu og afa og síðan í sumarbústað fjölskyldunnar. Ekki skemmir heldur að vera barnabarnabarn Gests á Hæli þegar kíkt er í Skaftholtsréttir. Þess naut ég þegar ég leiddi lista VG í kjördæminu árið 2003, þó ekki hafi það skilað þingsæti þá.

Ég tel gríðarlega mikilvægt að stórt landsvæði eins og undir er í Suðurkjördæmi eigi fulltrúa Vinstri grænna á þingi. Ari Trausti Guðmundsson hefur gegnt því hlutverki af sóma og það væri mér heiður að fá að halda áfram því góða starfi. Ég vil leggja mitt af mörkum til að Vinstri græn hljóti sem besta kosningu í haust.

Ég hef setið í þremur nefndum á þingi; atvinnuveganefnd, umhverfis- og samgöngunefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Áhugasvið mín endurspeglast þar; ég hef komið að stefnumótun í atvinnugreinum til sjós og lands og lagt til umbætur á sviði þjónustu við innflytjendur sem mun sjást best í stofnun Ráðgjafastofu fyrir innflytjendur innan tíðar. Þá hef ég komið að loftslagsmálum, umhverfis- og náttúruverndarmálum og m.a. leitt vinnu við heildarendurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum sem er á lokametrunum,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert