Öll kennsla verður rafræn vegna vatnstjóns

Slökkviliðsmenn að störfum í Háskóla Íslands í morgun.
Slökkviliðsmenn að störfum í Háskóla Íslands í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Öll kennsla sem fram hefur farið í húsakynnum Háskólatorgs og Gimli verður nú rafræn vegna vatnstjónsins sem varð þar í nótt. Jarðhæð í Gimli verður ónothæf næstu mánuði og sama gildir um fyrirlestrasali á jarðhæð á Háskólatorgi.

Þetta kemur fram í tilkynningu Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, til nemenda og starfsfólks.

„Ljóst er að verulegt tjón hefur orðið í allmörgum byggingum Háskóla Íslands vegna mikils vatnsleka í nótt en allt kapp er lagt á að röskun á starfi skólans verði sem minnst,“ skrifar rektor.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Hægt er að nálgast þjónustu á skrifstofu Félagsvísindasviðs símleiðis eða með rafrænum hætti fram að helgi. Verið er að leita að hentugu húsnæði fyrir skrifstofu Félagsvísindasviðs og til staðkennslu vegna þeirra rýma sem ekki er unnt að nýta vegna vatnstjónsins.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Þjónustuborð á Háskólatorgi verður opið á skrifstofutíma. Fólk er þó hvatt til að nýta rafrænar þjónustuleiðir eins og nokkur er kostur. Háma og Bóksalan á Háskólatorgi eru lokuð í dag en verða opnuð á morgun. Stúdentakjallarinn er lokaður en verður opnaður á laugardag.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Starfsfólk í þeim byggingum þar sem vatnstjón varð, á Háskólatorgi, í Gimli, Lögbergi, Árnagarði og í Aðalbyggingu, er hvatt til að hafa samband við næstu stjórnendur varðandi tilhögun vinnu í dag og út vikuna.

„Mér er efst í huga þakklæti til þeirra fjölmörgu, starfsfólks okkar og slökkviliðs, sem lögðu afar hart að sér í nótt við erfiðar aðstæður við að draga úr tjóni eins og unnt var. Þá vil ég þakka nemendum og starfsfólki skólans fyrir seiglu og samstöðu,“ skrifar Jón Atli.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert