Sigríður Dóra gestur á fundi dagsins

Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Ljósmynd/Lögreglan

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11:00 í dag. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála varðandi framgang kórónuveirufaraldursins hér á landi. 

Gestur fundarins verður Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Fundurinn verður í beinni útsendingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert