Tveir læknar hafa ávísað ivermectin á sjálfa sig

Jón Magnús seg­ir mik­il­vægt að hafa í huga að þrátt …
Jón Magnús seg­ir mik­il­vægt að hafa í huga að þrátt fyr­ir hundruð rann­sókna um all­an heim hef­ur fátt reynst gagn­ast sem lyfjameðferð gegn Covid-19. AFP

Undanþáguávísunum lyfja sem innihalda ivermectin hefur fjölgað töluvert í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Sjö undanþáguávísanir hafa borist vegna Covid-19 en ivermectin hefur hvorki verið samþykkt sem meðferð né forvörn við sjúkdómnum. 

Í þremur tilvikum hafa undanþáguávísanir með Covid-19 sem ábendingu verið samþykktar en í tveimur tilvikum er um að ræða lækna sem ávísuðu lyfinu á sjálfa sig.

Þetta kemur fram í svari Lyfjastofnunar við skriflegri fyrirspurn mbl.is um lyfið, en þar segir einnig að stofnuninni hafi borist tvöfalt fleiri undanþáguávísanir vegna ivermectin árið 2020 en árið þar á undan.

Eins og fram kemur í svari Jóns Magnús Jóhannessonar deildarlæknis á Landspítala við spurningu á Vísindavefnum hefur notk­un sníkju­dýra­lyfs­ins iver­mect­in gegn Covid-19 auk­ist veru­lega á síðustu mánuðum, gjarn­an án þess að lyfið hafi verið samþykkt til slíkr­ar notk­un­ar. Lyfið hef­ur fengið aukna at­hygli ný­lega sem mögu­leg meðferð gegn Covid-19. Ekki er hægt að staðfesta gagn­semi lyfs­ins með vissu fyrr en stærri og ít­ar­legri rann­sókn­ir á því hafa farið fram.

Undanþáguávísanir tvöfölduðust

Lyfjastofnun er ekki kunnugt um innflutning einstaklinga á lyfinu til eigin nota.

Árið 2019 bárust Lyfjastofnun 15 undanþáguávísanir lyfja sem innihalda ivermectin fyrir menn, þær voru allar við þekktri ábendingu og voru því allar samþykktar.

Árið 2020 bárust tvöfalt fleiri undanþáguávísanir lyfja sem innihalda ivermectin fyrir menn en árið þar á undan. Undanþáguávísanirnar voru alls 30, 29 við þekktri ábendingu og ein við Covid-19 þar sem læknir ávísar á sjálfan sig og voru þær allar samþykktar.

Þó einungis tæpur mánuður sé liðinn af árinu 2021 hafa nú þegar borist 7 undanþáguávísanir lyfja sem innihalda ivermectin fyrir menn, ein við þekktri ábendingu og var hún samþykkt. Sex undanþáguávísanir höfðu COVID-19 sem ábendingu og voru tvær samþykktar, í öðru tilvikinu var um að ræða lækni sem ávísaði á sjálfan sig, og fjórum hafnað. 

Mikil óvissa um gagnsemi lyfsins

Iver­mect­in er flókið sýk­ing­ar­lyf með margþætta gagn­semi. Það er notað um all­an heim gegn marg­vís­leg­um orma­sýk­ing­um en einnig gegn öðrum sníkju­dýr­um. 

Eins og áður segir hefur ivermectin hvorki verið samþykkt sem meðferð eða forvörn við Covid-19. 

Ekki ætti að taka lyf, hvorki þetta né önn­ur, sem for­vörn eða til meðferðar við sjúk­dómn­um, nema lækn­ir hafi ávísað því og upp­runi þess sé í sam­ræmi við lög og regl­ur,“ seg­ir á vefsíðu Lyfja­stofn­un­ar. Lyf­inu geta fylgt ýms­ar auka­verk­an­ir. 

Í fyrrnefndu svari Jóns Magnúsar segir hann að talsverð óvissa sé til staðar í umræðunni um ivermectin og Covid-19.

Að lok­um tek­ur Jón Magnús fram að áfram sé tals­verð óvissa til staðar í umræðunni um iver­mect­in og Covid-19.

„Sár skort­ur er á ár­ang­urs­ríkri, ör­uggri meðferð gegn COVID-19 – ef iver­mect­in upp­fyllti þau skil­yrði væri það ómet­an­leg viðbót í viðbrögðum okk­ar við þess­um heims­far­aldri sam­hliða bólu­setn­ing­um og sam­fé­lags­leg­um inn­grip­um. Því miður skort­ir okk­ur gögn­in til að segja til um slíkt en von­andi verður ráðin bót á því á næstu mánuðum.“

Fréttin var uppfærð 25. janúar með nýjum upplýsingum frá Lyfjastofnun

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert