Kvöldvaka með Helga Björns

Helgi Björns heldur uppteknum hætti.
Helgi Björns heldur uppteknum hætti. Ljósmynd/Mummi Lú

Hinn eini sanni Helgi Björns held­ur áfram að skemmta þjóðinni í beinni út­send­ingu ásamt Reiðmönn­um vind­anna og frá­bær­um gest­um með tón­leik­um úr hlöðunni sinni.

Lands­menn geta fylgst með tón­leik­un­um og skemmt sér heima á kvöld­vöku Sjón­varps Sím­ans, mbl.is og K100.

Helgi mun sem fyrr syngja mörg af sín­um þekkt­ustu lög­um í bland við perl­ur úr dæg­ur­laga­sög­unni okk­ar og að sjálf­sögðu mun hann njóta aðstoðar góðra gesta.

Útsend­ing­in hefst klukk­an 20 og verður hægt að fylgj­ast með henni í Sjón­varpi Sím­ans, í streym­inu hér að neðan og á út­varps­rás K100.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert