Kvár og stálp meðal nýrra hýryrða

Hýryrðasamkeppnin hefur verið haldin árlega frá árinu 2015.
Hýryrðasamkeppnin hefur verið haldin árlega frá árinu 2015. mbl.is/Freyja Gylfa

Samtökin 78 hafa kynnt þau hýryrði sem voru hlutskörpust í hugtakasamkeppni félagsins á liðnu ári. Með hýryrðum er átt við nýyrði sem sérstaklega vísa til hinsegin fólks eða hugtaka sem eru því tengd.

Að þessu sinni mælti dómnefnd með þremur orðum: 

Kvár (sbr. karl, kona)
Dómnefnd var sammála um að orðið kvár væri heppilegast sem ókyngreint nafnorð um fullvaxta manneskju. Orðið hefur þegar hlotið nokkra útbreiðslu meðal hinsegin fólks, en er þó ekki nema nokkurra mánaða gamalt. Orðasmiður er Hrafnsunna Celeste Ross.

Stálp (sbr. stelpa, strákur)
Orðið stálp er heppilegt að því leyti að það tengist lýsingarorðinu stálpaður og hljómar því kunnuglega ásamt því að byrja á st- líkt og bæði strákur og stelpa. Auk þess hefur orðið -á- líkt og strákur og -lp- líkt og stelpa. Dómnefnd var sammála um að gagnsæi þessa orðs gæti orðið til þess að það næði útbreiðslu auðveldlega. Orðasmiður er Inga Auðbjörg Straumland.

Mágkvár (sbr. mágkona, mágur) og svilkvár (sbr. svilkona, svili)
Fyrir frændsemisorðin sem hefjast á mág- og svil- fannst dómnefnd liggja beint við að skeyta aftan við nafnorðinu kvár, en þessi orðmyndun kom einnig fram í tillögum þátttakenda. Þessi aðferð gæti jafnframt reynst vel fyrir fleiri orð í framhaldinu, þá sérstaklega þar sem seinni hluti samsetts orðs er -kona og/eða -maður. Orðasmiður er Regn Sólmundur Evu.

Fjölmörg nýyrði orðið til

Hýryrðasamkeppni Samtakanna 78 hefur verið haldin árlega frá árinu 2015 en meðal þeirra orða sem áður hafa fengið meðmæli dómnefndar eru dulkynja, þýðing á enska orðinu androgynous sem lýs­ir því á máta þegar kyn ein­stak­lings er ekki aug­ljóst, kærast (sem kynhlutlaust orð í stað kærasta eða kærustu) og bur í stað sonar eða dóttur.

Síðastnefnda orðið hefur raunar verið tekið inn í lög, því nú er fólki frjálst að kenna sig til foreldris með endingunni -bur í stað -sonar eða -dóttur. Jón Sigurðsbur, til dæmis.

Í dómnefnd hýryrðasamkeppninnar 2020 sátu Alda Villiljós, Ágústa Þorbergsdóttir, Eiríkur Rögnvaldsson, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, Valgerður Hirst Baldurs og Þorbjörg Þorvaldsdóttir.

Í tilkynningu frá Samtökunum 78 segir mikilvægt að árétta að orðin séu aðeins tillögur. Þau geti breyst með almennri notkun nái þau útbreiðslu. „Þegar allt kemur til alls er það svo kynsegin fólk sjálft sem ræður því hvort þessi orð uppfylli þá þörf sem þeim er ætlað að mæta.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert