Annað og stærra flóð í nágrenni Eskifjarðar

Horft upp í hlíðina austan megin við Eskifjörð þar sem …
Horft upp í hlíðina austan megin við Eskifjörð þar sem vegurinn upp í Oddskarð liggur. Hægra megin fyrir miðju má sjá brotstálið. Ljósmynd/Aðsend

Annað stórt flóð féll í nágrenni Eskifjarðar síðdegis í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er líklegast um stærra flóð að ræða en það sem féll úr Harðskafa fyrr í morgun.

Flóðið, sem féll um klukkan hálfþrjú í dag, féll úr Hólmgerðarfjalli, en það er austan megin við bæinn.

Eins og myndin sem fylgir fréttinni sýnir er brotstálið bæði greinilegt og umtalsvert langt. Var flóðið í hlíðunum fyrir ofan veginn upp í Oddskarð. Óli­ver Hilm­ars­son, snjóflóðasér­fræðing­ur á Veður­stof­unni, segir að flóðið hafi fallið fljótlega eftir að sólin fór að skína á fjallið sem sýni hversu veikt lagið er undir. Ítrekar hann að mjög varasamt er að vera á ferðalagi til fjalla við þessar aðstæður.

Áður hafði verið greint frá að fyrra flóðið teldist 4,5 að stærð, en nánari athugun hefur leitt í ljós að það flokkast sem 3,5 að stærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert