447 sóttu um hlutdeildarlán

Fjölmargar umsóknir um framkvæmdalán hafa borist.
Fjölmargar umsóknir um framkvæmdalán hafa borist. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alls var 171 umsókn um hlutdeildarlán samþykkt á árinu 2020. Samtals bárust 327 umsóknir á tímabilinu, en verkefnið fór af stað í byrjun nóvembermánaðar í fyrra.

Þetta kemur fram í gögnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem um er fjallað í Morgunblaðinu í dag.

Talsvert var um að umsækjendur hættu við umsókn eða skiluðu ekki inn gögnum. Það gerði það að verkum að vinnsla viðkomandi umsóknar var stöðvuð. Þá var 34 umsóknum synjað auk þess sem 24 eru enn í vinnslu.

Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri stofnunarinnar, segir að umsóknafjöldinn það sem af er ári sé á svipuðu róli og í fyrra. Þannig hafi yfir 100 umsóknir borist í janúar. Um er að ræða fyrstu úthlutun af sex á árinu 2021, en umsóknarfrestur er til 31. janúar nk. „Það eru 120 umsóknir komnar í næstu úthlutun sem er fyrsta úthlutun af sex,“ segir Anna. Alls hafa borist 447 umsóknir um hlutdeildarlán frá því að verkefni fór af stað fyrir um þremur mánuðum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert