Austan- og norðaustanátt ræður ríkjum

Kort/Veðurstofa Íslands

„Austan- og norðaustanátt, víða allhvöss eða hvöss en mun hægari austan til. Dálítil él á norðanverðu landinu en bjart með köflum syðra. Austlægari vindar á morgun og léttir smám saman til, en stöku él úti við sjávarsíðuna og áfram svipað veður á fimmtudag. Frostlaust allra syðst, en annars talsvert frost, einkum í innsveitum nyrðra,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Veðurhorfur í dag og næstu daga

Austan og norðaustan 10-18 m/s en hægari vindur A-lands. Lægir heldur SV-til í kvöld. Dálítil él á N-verðu landinu en annars yfirleitt bjartviðri. Austan 10-18 m/s á morgun, hvassast syðst og á Vestfjörðum, en mun hægari A-lands. Birtir víða til en stöku él við sjávarsíðuna. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.

Á miðvikudag:
Austlæg átt, 10-18 m/s SV-til, hvassast og lítils háttar slydda eða snjókoma með ströndinni en annars mun hægari vindar og bjartviðri. Frost 0 til 10 stig, mildast syðst.

Á fimmtudag:
Austan 8-15 m/s S-til, skýjað með köflum og frostlaust með ströndinni. Annars hæg breytileg átt, víða bjartviðri og frost 1 til 8 stig.

Á föstudag:
Suðaustlæg átt og dálítil rigning eða slydda S- og V-lands og hiti yfir frostmarki en annars hægir vindar, bjartviðri og talsvert frost.

Á laugardag:
Suðlæg átt, víða rigning eða slydda með köflum og hiti yfir frostmarki, en þurrt að kalla NA-lands og vægt frost þar.

Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir austan- og norðaustanáttir með dálítilli snjókomu eða éljum og hita við frostmark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert