Vatnstjónið í HÍ má rekja til mistaka

mbl.is/Kristinn Magnússon

Mistök voru gerð við framkvæmdir á vegum Veitna við Suðurgötu sem ollu því að stofnlögn vatns fór í sundur þannig að vatn flæddi inn í byggingar Háskóla Íslands. Verið er að endurnýja lögnina og veggur lokahúss, sem styður við hana, var rofinn of snemma í verkinu. Þar sem enn var þrýstingur á lögninni fór hún í sundur á samskeytum með þessum afleiðingum.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Þetta er niðurstaða greiningar starfsfólks Veitna á atvikinu. Veitur eru með frjálsa ábyrgðatryggingu og hefur tryggingarfélagi Veitna verið kynntar bráðabirgðaniðurstöður greininga. Einnig hefur verið fundað með forsvarsfólki Háskóla Íslands og öðrum hagaðilum, að því er segir í tilkynningu frá Veitum. 

mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þegar tjón verður og skera þarf úr um bótaábyrgð er það á verksviði tryggingarfélaga, ekki Veitna. Það mat liggur ekki fyrir á þessari stundu. Veitum þykir miður að mistökin hafi valdið þessu tjóni og raskað starfi Háskólans. Fyrirtækið hefur boðið fram aðstoð til að tjónið og truflun á skólastarfi verði sem minnst.

Atvikið er litið alvarlegum augum innan Veitna og er þegar hafin rýni á verklagi og samskiptum allra sem að framkvæmdum á vegum fyrirtækisins koma,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert