Ætluðu að loka á rafmagnið

Loka átti á rafmagn til rækjuverk-smiðjunnar Kampa á Ísafirði eftir …
Loka átti á rafmagn til rækjuverk-smiðjunnar Kampa á Ísafirði eftir aðfyrirtækið hætti að greiða af skuldsinni við Orkubú Vestfjarða. Ljósmynd/Kampi

Loka átti á rafmagn til rækjuverksmiðjunnar Kampa á Ísafirði eftir að fyrirtækið hætti að greiða af skuld sinni við Orkubú Vestfjarða.

Elías Jónatansson orkubússtjóri staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið. Samkvæmt heimildum blaðsins hljóp skuld Kampa á tugum milljóna króna. Aðspurður segist Elías ekki vilja tjá sig um upphæð skulda tiltekinna viðskiptavina.

Eins og Morgunblaðið greindi frá fyrr í vikunni fékk rækjuvinnslan greiðslustöðvun á dögunum eftir að í ljós kom að staða félagsins var allt önnur en fram hafði komið í ársreikningi. Þannig var fjárhagsstaðan miklu verri, en samkvæmt heimildum blaðsins skeikaði stöðunni um hundruð milljóna króna. Hefur stjórnarformaður Kampa, Jón Guðbjartsson, sagt að einum stjórnanda sé þar um að kenna.

Elías segir að skuld Kampa gagnvart Orkubúi Vestfjarða sé að hluta til gömul. Hún hafði lækkað á síðasta ári, eða þar til á seinni hluta ársins þegar síga fór á ógæfuhliðina.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert