Eldur í togara í Slippnum

Frá vettvangi.
Frá vettvangi. mbl.is/Árni Sæberg

Eldur kom upp í togara í Slippnum í Reykjavík á þriðja tímanum í dag þegar unnið var að viðgerð á togaranum.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var búið að slökkva eldinn að mestu áður en þeir komu á vettvang.

Ekki er talið að mikið tjón hafi orðið við eldsvoðann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert