Flugstöðin á Akureyri stækkar um 1.100 fm

Svona verður flugstöðin séð frá bílastæðinu. Viðbyggingin vinstra megin, núverandi …
Svona verður flugstöðin séð frá bílastæðinu. Viðbyggingin vinstra megin, núverandi flugstöð og flugturninn til hægri. Ljósmynd Akureyri.net

Stefnt er að því að viðbygging við flugstöðina á Akureyri verði tekin í notkun eftir um það tvö og hálft ár, um vor eða sumar 2023. Um er að ræða 1.100 fermetra stálgrindarhús. Fjallað er um þetta á Akureyri.net.

Í viðbyggingunni, sem verður við norðurenda núverandi flugstöðvar en nær til vesturs, verður brottfarar- og komusalur fyrir millilandaflug, fríhöfn og veitingasala. Innritunarsalur fyrir bæði innanlands- og millilandaflug verður í núverandi komusal og innanlandsfarþegar fara um suðurhluta núverandi byggingar.

Það eru Arkis og Mannvit sem sjá um hönnun viðbyggingarinnar en hægt er að lesa nánar um þetta og skoða fleiri myndir á Akureyri.net.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert