Nýtt upphaf! Janúarráðstefna Festu

Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu og Halla Tómasdóttir, forstjóri B Team.
Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu og Halla Tómasdóttir, forstjóri B Team. Ljósmynd Valgarður Gíslason

Nýtt upphaf! er yfirskrift janúarráðstefnu Festu sem hefst klukkan 9 og stendur til kl 12. Þetta er jafnframt heiti á átaki á vegum World Economic Forum sem hefur það markmið að einblína á mikilvægi þess að horfa til sjálfbærrar uppbyggingar samfélaga í kjölfar kórónuveirufaraldursins en huga þurfi að umhverfinu og taka tillit til hagsmuna helstu hagaðila. 

Á ráðstefnunni verða kynntar niðurstöður nýrrar rannsóknar Deloitte á viðhorfi stjórnenda 300 stærstu fyrirtækja landsins um aðgerðir fyrirtækja í loftslagsmálum.

Markmiðið með könnuninni er að varpa ljósi á hvernig stjórnendur eru að takast á við loftslagsáskorunina. Enn fremur geta niðurstöðurnar nýst í frekari stefnumörkun og umræður um loftslagsmál hér á landi.

DAGSKRÁ:

·  Tómas N. Möller formaður Festu og Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu – 

·  Nicole Schwab Co – head Nature Based Solutions @World Economic Forum - Hvað felst í hinu Nýja upphafi – The Great Reset 

·  Halla Tómasdóttir forstjóri B Team - Hvað er þitt hlutverk í Nýju upphafi?

·  Pallborðsumræður - Leiðtogar úr íslensku atvinnulífi taka stöðuna í panelumræðum – .

·  AÐILD Festu 2021 kynnt til leiks

·  Michele Wucker metsöluhöfundur og forstjóri Gray Rhino & Company - Hvaða Gráu nashyrningar verða á vegi okkar á árinu?

·  John McArthur, forstjóri miðstöðvar um sjálfbæra þróun hjá Brookings stofnuninni – Miklar umbreytingar: Hröðum framgangi heimsmarkmiðanna

·  Sasja Beslik, forstjóri sjálfbærra fjárfestinga hjá J. Safra Sarasin Bank – Draumafjárfesting 2035

·  Leiðtogar úr íslensku atvinnulífi taka stöðuna

·  Eru íslenskir stjórnendur á grænni vegferð?  Rakel Eva Sævarsdóttir verkefnastjóri Deliotte kynnir niðurstöður könnunar Deloitte – Græna vegferðin, könnun meðal stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins um aðgerðir fyrirtækja í loftslagsmálum

·  Pallborðsumræður - Leiðtogar úr íslensku atvinnulífi taka stöðuna!

·  Hvernig gekk að innleiða hringrásarhagkerfið á árinu? – Fimm fyrirtæki settu sér hringrásarmarkmið í upphafi árs 2020 – hvernig gekk?

·  Elísabet H. Brynjarsdóttir hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri Frú Ragnheiðar – Sjálfbær velferð – hugvekja

  Embed:  
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert