Vegurinn lokaður við Jökulsá á Fjöllum

Ljósmynd/Lögreglan

Hringvegurinn er lokaður við Jökulsá á Fjöllum af öryggisástæðum vegna hættu á krapaflóði í ánni. Athugað verður með opnun milli 8 og 9 samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Vetrarfærð er í flestum landshlutum en þó er greiðfært með Suðurströndinni. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum Vestfjarða en þungfært yfir Þröskulda. Vegfarendum er bent á að aka þarf um vetrarveg við Bæjardalsá á Vestfjarðavegi (60). Dynjandisheiði er lokuð en stefnt á opnun í dag.

Vegurinn um Víkurskarð er lokaður vegna veðursins undanfarna daga. Stefnt er að því að opna hann í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert