Rannsókn banaslyssins langt komin

Vettvangsstörf í Skötufirði.
Vettvangsstörf í Skötufirði. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Rannsókn lögreglunnar á Vestfjörðum á banaslysi sem varð í Skötufirði fyrr í mánuðinum er langt komin. Þetta staðfestist í samtali mbl.is við fulltrúa lögreglu. Þrjú voru í bíl sem hafnaði úti í sjó vestan megin í Skötufirði. Tvö létust, kona og sonur hennar en fjölskyldufaðirinn, Tomasz Majewski, komst lífs af.

Samkvæmt lögreglu á eftir að rannsaka bílinn og getur það tekið töluverðan tíma. Þó er ekkert sem bendir til þess að neitt saknæmt hafi átt sér stað.

Nafn drengs­ins sem lést er Mikolaj Maj­ewski og var hann á öðru ári er hann lést á Land­spít­al­an­um, þann 19. janúar síðastliðinn. Móðir hans, Kamila Maj­ewska, lést þremur dögum fyrr, einnig á Land­spít­ala. Fjölskyldan bjó á Flateyri og stofnuðu aðstandendur hennar söfnunarreikning til að styðja við bakið á Tomasz á erfiðum tímum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert