Flokksráðsfundur VG fordæmir árásir

Skotgöt á skrifstofu Samfylkingarinnar.
Skotgöt á skrifstofu Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar  græns framboðs, sem hófst í gær, fordæmir árásir við heimili borgarstjóra og höfuðstöðvar stjórnmálasamtaka.

„Þessar árásir eru ofbeldi og aðför að lýðræðislegu og opnu samfélagi og eiga ekki að líðast. Lýðræðislega kjörnir fulltrúar eiga ekki að þurfa að þola hótanir um ofbeldi, eignaspjöll eða þaðan af verra og eiga að njóta friðhelgi einkalífs síns rétt eins og annað fólk,“ segir í ályktun fundarins.

„Það er staðreynd að fólk sem lætur sig samfélagsmál varða og tekur þátt í pólitískri umræðu er útsettara fyrir níði, hótunum, ofbeldi og hatursummælum. Þessu eigum við að sporna við í hvívetna enda viljum við samfélag þar sem við getum skipst á skoðunum á uppbyggilegan og jákvæðan hátt og verið frjáls undan ofbeldi, hótunum og kúgun svo öll þau sem taka þátt í pólitískri umræðu og við öll getum farið frjáls ferða okkar í friðsamlegu og öruggu samfélagi,“ segir einnig í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert