Aðstæður við Jökulsá endurskoðaðar á miðvikudag

Vatnshæð náði hámarki á laugardag.
Vatnshæð náði hámarki á laugardag. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Óvissustig almannavarna er enn í gildi vegna vatnshæðar við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að fyrirkomulag um umferðarstýringu verði næst endurskoðað á miðvikudag.

Samkvæmt sérfræðingi Veðurstofu Íslands, sem mbl.is ræddi við fyrir hádegi, hefur vatnshæðin haldist nánast óbreytt frá í gær þegar hún hafði lækkað lítillega eftir að hafa náð hámarki á laugardagsmorgun.

Enn er mikill krapi og ís í ánni og áfram er spáð miklum kulda og má því áfram búast við svipuðum aðstæðum í ánni næstu daga. Á meðan ástandið varir er enn yfirvofandi hætta á að krapastíflur bresti ofar í ánni sem geta valdið hættu eða tjóni á og við brúna.

Opið er fyrir umferð yfir brúna á milli klukkan 9 og 18, eða á meðan dagsbirta er og hægt að fylgjast með vatnsborðinu. Vakt er á staðnum til þess að fylgjast með ef breytingar verða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert