Fordæma árásir

Skotið var á skrif­stof­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.
Skotið var á skrif­stof­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fordæmir árás á bifreið Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og húsnæði stjórnmálaflokka.

Skotið var á skrif­stof­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar fyr­ir tæpum tveimur vikum og á bif­reið Dags B. Eggerts­son­ar borg­ar­stjóra fyr­ir utan heim­ili hans aðfaranótt fimmtu­dags.

Á Íslandi eigum við að njóta þess að búa í öruggu og öfgalausu samfélagi. Árásir eins og þessar eru ekki bara árásir á fólk heldur líka lýðræðið og það getum við aldrei liðið hér á landi,“ segir í tilkynningu Sambands íslenskra sveitarfélaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert