Landsmenn orðnir 368.590

Landsmönnum fjölgaði um 570 á síðasta ársfjórðungi.
Landsmönnum fjölgaði um 570 á síðasta ársfjórðungi. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Samtals fjölgaði landsmönnum um 570 á fjórða ársfjórðungi í fyrra og er fjöldi þeirra sem búa hérlendis orðinn 368.590 samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Samtals fæddust 1.080 börn en 630 einstaklingar létust á ársfjórðungnum. Þá fluttust 90 til landsins umfram brottfluttna.

Aðfluttir með íslenskt ríkisfang voru 150 umfram brottflutta en brottfluttir erlendir ríkisborgarar voru 60 fleiri en þeir sem fluttust til landsins. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu. Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 100 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 210 íslenskir ríkisborgarar af 390 alls. Af þeim 1.530 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 590 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (170), Noregi (70) og Svíþjóð (80), samtals 320 manns af 540. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 280 til landsins af alls 1.470 erlendum innflytjendum. Rúmenía kom næst en þaðan fluttust 90 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fjórða ársfjórðungs bjuggu 51.180 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 13,9% af heildarmannfjölda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert