Loka yfir Jökulsá vegna aukinnar óvissu

Jökulsá á Fjöllum.
Jökulsá á Fjöllum. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Hringveginum hefur verið lokað við Jökulsá á Fjöllum vegna aukinnar óvissu og nýrra upplýsinga frá vísindamönnum um einhverjar breytingar á hegðun árinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.

Lokunarpóstur hefur verið settur upp á hringveginum við Kröfluafleggjara að vestan og vestan við Vopnafjarðarafleggjara að austan.

Allri umferð um Mývatnsöræfi er því beint um norðausturströndina, Húsavík, Þórshöfn og Vopnafjörð. Ekkert verður ákveðið með opnun vegarins í bráð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert