Táknræn mótmæli við heilbrigðisráðuneytið

Iðunn Garðasdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, veitti undirskriftunum viðtöku í dag.
Iðunn Garðasdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, veitti undirskriftunum viðtöku í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyrirhuguðum breytingum vegna brjóstaskimana var mótmælt þegar ríflega 37.000 undirskriftir voru afhentar í heilbrigðisráðuneytinu í morgun. Alls mætti 31 kona í ráðuneytið, en átta þeirra báru svartar húfur og 23 appelsínugular. Með því vildu þær sýna með táknrænum hætti fram á þær konur sem greinast með krabbamein fyrir fimmtugt og þeirra sem myndu jafnvel ekki greinast fyrr en það yrði of seint.

Fram kemur í tilkynningu frá hópnum, að á tímabilinu 2015-2019 hafi árlega greinst að meðaltali 31 kona á aldrinum 40-49 ára með brjóstakrabbamein.

31 kona með svartar og appelsínugular húfur komu saman við …
31 kona með svartar og appelsínugular húfur komu saman við heilbrigðisráðuneytið í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Áætla má með að þriðjungur þeirra meina greinist í skimun. Ef að aldurinn yrði hækkaður upp í 50 ár myndi það þýða að þriðjungur kvenna greindist seinna. Til að sýna þetta myndrænt munu 31 konur sem hafa greinst með brjóstakrabbamein mæta fyrir utan heilbrigðisráðuneytið við afhendingu listans. Þriðjungur kvennanna ber þá svarta húfu en restin appelsínugula. Þannig birtist táknmynd kvenna sem greinast með krabbamein fyrir fimmtugt og þeirra sem myndu jafnvel ekki greinast fyrr en það yrði of seint,“ segir í tilkynningu. 

Hópurinn segir, að þegar ljóst var í byrjun janúar að breytingar höfðu tekið gildi er varði aldursbil kvenna sem boðið yrði í reglubundna brjóstaskimun hafi hafist mikil umræða sem og undirskriftarsöfnun þar sem þess var krafist að breytingar á skimunum yrðu endurskoðaðar.

Í dag, á alþjóðadegi gegn krabbameinum, afhenti Elín Sandra Skúladóttir, formaður Krafts, og Jónína Edda Sævarsdóttir, forsprakki undirskriftarsöfnunarinnar, Iðunni Garðarsdóttur, aðstoðarmanni heilbrigðisráðherra, undirskriftarlistann.

„Fannst ég verð að gera eitthvað“

 „Eftir að hafa misst móður mína og ömmu báðar úr krabbameini ásamt því að konur mér nærri hafi greinst með krabbamein fyrir fertugt gat ég ekki hugsað mér að sitja hjá og horfa á þessar breytingar á skimunum kvenna. Mér fannst ég verða að gera eitthvað og þá datt mér í hug að setja af stað undirskriftalista til að  mótmæla breytingunum,“ segir Jónína Edda í tilkynningu.   

Alls hefur 37.291 einstaklingur skrifað undir listann þar sem krafist er endurskoðunar á nýjum ákvæðum um krabbameinsskimanir kvenna þ.e breyttan aldur í brjóstaskimun og breytingu á hversu mörg ár líða á milli leghálsskimana.

Um áramótin átti að færa neðri aldursviðmið brjóstaskimunar upp í 50 ár sem áður miðaðist við 40 ára aldur. Eftir að mikil umræða skapaðist um breytingarnar og ljóst að almenn óánægja ríkti meðal  Íslendinga ákvað Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, að fresta um ótiltekinn tíma breytingum á neðri mörkum aldursviðmiða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert