Aðalmeðferð í máli Jóns Baldvins gegn dóttur hans

Jón Baldvin Hannibalsson í héraðsdómi í morgun.
Jón Baldvin Hannibalsson í héraðsdómi í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aðalmeðferð í máli Jóns Bald­vins Hanni­bals­son­ar gegn fjöl­miðlamann­in­um Sig­mari Guðmunds­syni, Rík­is­út­varp­inu og dótt­ur Jóns, Al­dísi Schram, hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Skýrslutökur í málinu fara þá fram en munnlegur málflutningur verður á föstudag.

Sum­arið 2019 stefndi Jón Bald­vin dótt­ur sinni Al­dísi Schram vegna um­mæla henn­ar í Morg­unút­varp­inu 17. janú­ar sama ár. Jón Bald­vin ger­ir ekki fjár­kröf­ur á hend­ur Al­dísi held­ur krefst þess að um­mæl­in, níu úr Morg­unút­varp­inu og ein af Face­book, verði dæmd dauð og ómerk.

Sig­mari er stefnt fyr­ir fern um­mæli úr þætt­in­um 17. janú­ar en Jón Baldvin krefur hann um 2,5 milljónir króna.

Sigmar Guðmundsson í dómssal við upphaf aðalmerðferðar.
Sigmar Guðmundsson í dómssal við upphaf aðalmerðferðar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sigmar sagði í sam­tali við mbl.is árið 2019 að um­mæl­in væru end­ur­sögn á um­mæl­um Al­dís­ar í viðtal­inu og um­mæli sem hún hafði birt op­in­ber­lega á Face­book og aðrir miðlar höfðu vitnað til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert