Ragnar fagnar mótframboðinu

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mér hefur fundist þetta liggja svolítið í loftinu,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, um framboð Helgu Guðrúnar Jónasdóttur til formanns stéttafélagsins. Kjörstjórn tilkynnti í hádeginu að kosningar til formanns fara fram 8. til 12. mars næstkomandi.

Ragnar hefur verið formaður VR í fjögur ár en hann segist hálfpartinn hafa vonast til þess að geta lagt störf sín í dóm félagsmanna og sömuleiðis sótt umboð þeirra til áframhaldandi góðra verka.

Ég fagna því að fá tækifæri til þess,“ segir Ragnar sem skilaði inn sínu framboði til formanns í hádeginu.

Helga sagði í samtali við mbl.is að formanni VR beri að nota styrk­inn sem fylg­ir því að vera formaður öfl­ug­asta stétt­ar­fé­lags lands­ins til að bæta kjör fé­lags­manna en ekki eig­in stöðu á flokk­spóli­tísk­um vett­vangi.

„Ragn­ar er flott­ur kall og hef­ur al­veg sín­ar skoðanir sem hann hef­ur rétt á. Það er hins veg­ar spurn­ing hvort hann sé á rétt­um vett­vangi. Mér finnst að hann eigi frek­ar að fara með þessa bar­áttu í flokk­spóli­tík þar sem hún á heima,“ sagði Helga.

„Það er hennar skoðun. Ég held að ég sé á réttum stað og tel að okkur hafi gengið mjög vel. Okkur hefur gengið vel að efla traust til verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Ragnar og nefnir bæði VR og ASÍ í því samhengi.

Spurður hvort hann sé sigurviss segist Ragnar leggja verk sín og framhaldið í hendur félagsmanna sem kjósa í kosningunum.

„Ég tel mig eiga ágætis mögulega,“ segir Ragnar og heldur áfram:

„Ég legg mínar áherslur fyrir félagsmenn og ef þeir ákveða að hag sínum og stefnu félagsins sé betur borgið annars staðar fer ég sáttur frá borði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert