Fékk loksins að hitta móður sína

Guðmundur Felix ásamt móður sinni, Guðlaugu Ingvadóttur.
Guðmundur Felix ásamt móður sinni, Guðlaugu Ingvadóttur. Ljósmynd/Af síðu Guðmundar Felix

Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk nýverið grædda á sig handleggi í Lyon í Frakklandi er kátur með að fá loks að hitta móður sína, Guðlaugu Ingvadóttur. Hann hefur nú hitt hana í tvígang síðan aðgerðin var framkvæmd, eftir að spítalinn veitti þeim mæðginum undanþágu frá ströngum heimsóknarreglum vegna Covid-19. 

Guðmundur segir í færslu á Facebook-síðu sinni að vonandi fái hann að hitta pabba sinn um helgina. 

Guðmundur fékk grædda á sig handleggi um miðjan janúar, fyrstur manna. Það tekur sinn tíma fyrir Guðmund að jafna sig eftir aðgerðina og liggur hann nú á sjúkrahúsi í Lyon.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert