Bólusetning langt komin í lok júní

Frá bólusetningu í Laugardalshöll í síðustu viku. Mögulega verður búið …
Frá bólusetningu í Laugardalshöll í síðustu viku. Mögulega verður búið að bólusetja meirihluta landsmanna í sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gera má ráð fyrir að hægt verði að bólusetja tæplega 190.000 einstaklinga hér á landi fyrir lok júní næstkomandi með bóluefnum Pfizer, AstraZeneca og Moderna sem öll eru með markaðsleyfi og komin í notkun hér á landi.

Greint er frá þessu á vef heilbrigðisráðuneytisins þar sem segir að þetta sé mun meira en áður hafi verið vænst.

Mestu munar annars vegar um nýjan samning Evrópusambandsins við Pfizer sem tryggir Íslandi bóluefni fyrir 25.000 til 30.000 manns strax á öðrum ársfjórðungi, til viðbótar fyrri samningum. Gert er ráð fyrir að Ísland undirriti samning um aukið magn bóluefna frá Pfizer á grundvelli nýs samnings Evrópusambandsins fyrir lok þessarar viku,“ segir á vef ráðuneytisins.

Einnig mun aukin framleiðslugeta AstraZeneca hafa áhrif. Alls verður rúmlega 280.000 einstaklingum boðin bólusetning hér á landi, þ.e. öllum sem eru 16 ára og eldri. Vænta má bóluefna frá fleiri lyfjaframleiðendum á öðrum ársfjórðungi að því gefnu að þeim verði veitt markaðsleyfi á næstunni eins og að er stefnt. 

Fleiri bóluefni væntanleg

Gert er ráð fyrir að Evrópska lyfjastofnunin leggi mat á bóluefni Janssen og Curevac innan skamms en mat hennar er forsenda markaðsleyfis. Áætlað er að afhending þessara bóluefna geti hafist á öðrum fjórðungi ársins en ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar frá framleiðendunum um magn.

Að auki er framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að leggja lokahönd á samning um kaup á bóluefni frá Novavax sem Ísland getur fengið hlutdeild í á sömu forsendum og gilt hafa um aðra samninga Evrópusamstarfsins. 

Bólusetningardagatal væntanlegt

Sóttvarnalæknir vinnur að gerð bólusetningardagatals á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga um afhendingu bóluefna á næstu mánuðum. Þar verða birtar upplýsingar um forgangshópa og hvenær einstaklingar í hverjum hópi geta vænst þess að fá boð um bólusetningu. Þessum upplýsingum er fyrst og fremst ætlað að veita fólki grófar upplýsingar um framvindu bólusetninga gegn Covid-19 hér á landi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert