Auka vöktun með efnainnihaldi neysluvatns

Stillingar á nýjum búnaði í Gvendarbrunnum.
Stillingar á nýjum búnaði í Gvendarbrunnum. Ljósmynd/Sverrir Guðmundsson

Veitur hafa sett upp vöktunarbúnað til að vakta mögulegar breytingar á efnainnihaldi neysluvatns frá vatnstökusvæðum í Heiðmörk ef kæmi til eldgoss á Reykjanesskaga.

Tekin var ákvörðun um vöktunina í kjölfar fundar með almannavarnadeild ríkislögreglustjóra  sem haldinn var þegar land reis vegna kvikuinnskots nærri fjallinu Þorbirni við Grindavík. Með gosi á því svæði gætu gosefni borist til höfuðborgarsvæðisins, fallið niður á vatnstökusvæðin og ógnað drykkjarhæfi vatnsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Ákveðið var að hefja vöktunina svo skjótt sem verða mætti til þess að ákvarða betur breytileika í efnainnihaldi vatnsins eins og það er við bestu skilyrði og hafa þannig gögn til samanburðar ef eða þegar af eldgosi verður. 

Mælibúnaðurinn sem keyptur var mælir grugg, leiðni, sýrustig, hita og flúorinnihald með mikilli nákvæmni og miðlar gögnum ört í gegnum vefviðmót.

Sett voru upp tvö tæki sem vakta vatnið frá vatnstökusvæðunum í Heiðmörk; Vatnsendakrikum annars vegar og Gvendarbrunna- og Myllulækjarsvæðinu hins vegar.

Jafnframt hafa Veitur útfært viðbragðs- og vöktunaráætlun til að fylgjast með öðrum þáttum er haft geta áhrif á vatnið en ekki er auðsótt að mæla í rauntíma. Með þessari nýju vöktun eru Veitur í aðstöðu til að fylgjast betur með mögulegum breytingum á efnainnihaldi neysluvatns. Markmiðið er einnig að vera í stakk búin að miðla upplýsingunum til vatnsveitna í nágrannasveitarfélögum sem að öllum líkindum myndu verða fyrir sambærilegum áhrifum af eldgosi, kæmi til þess,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert