Féllst á tillögur Þórólfs

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að fallist hafi verið á tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis varðandi hertar reglur á landamærunum. Breytingin tekur gildi á föstudag og gildir til 30. apríl.

Annars vegar verður gerð krafa um að fólk framvísi neikvæðu PCR-prófi á brottfararstað og hins vegar verður framkvæmd ýmissa atriða bætt. Má þar nefna víðtækari heimildir til að fólki verði gert að fara í farsóttarhús, svo sem ef viðkomandi er smitaður af bráðsmitandi afbrigði eða getur ekki gefið upp nægjanlega góðar upplýsingar um búsetu í sóttkví. 

Þetta þýðir að enginn kemst inn í landið nema viðkomandi framvísi neikvæðu PCR-prófi frá því landi sem viðkomandi er að koma frá. Síðan er skimun á landamærunum og svo önnur eftir fimm daga skimunarsóttkví.

RT-PCR-próf er sú greiningaraðferð sem eingöngu hefur verið notuð hér á landi til þessa, til að greina hvort fólk sé með veiruna sem veldur Covid-19. Þetta er nákvæmasta prófið sem völ er á til að greina veiruna en það er hins vegar dýrara en skyndigreiningarprófin og lengri tíma tekur að fá niðurstöður. Niðurstöður úr einstökum skyndigreiningarprófum geta fengist á innan við 30 mínútum.

Enn á eftir að fara betur yfir tillögur Þórólfs varðandi framvísun bólusetningarvottorða á landamærum segir Svandís. Ísland var með fyrstu löndum Evrópu til að taka á móti þessum vottorðum og nú gera það einnig 4-5 ríki til viðbótar og eru fleiri að bætast í þann hóp. Þórólfur vildi fara varfærnari leið og hætta við þetta en þetta er eitthvað sem þarf að skoða betur segir Svandís en hún ræddi við blaðamenn að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. 

Svandís á von á því að Þórólfur muni fljótlega skila nýjum tillögum varðandi tilslakanir innanlands. Hún hafi rætt það við Þórólf að það sé það næsta sem eigi að skoða, það er varðandi fjöldatakmarkanir og tiltekna starfsemi. Ég geri ráð fyrir að mér muni berast minnisblað frá sóttvarnalækni á allra næstu dögum,“ segir Svandís sem svaraði játandi spurningu blaðamanns um hvort það gæti orðið í næstu viku.

Reglur sem gilda á landamærunum

Bætt við klukkan 11:55

Öllum sem koma til landsins frá og með 19. febrúar næstkomandi verður skylt að framvísa nýlegu vottorði um neikvæða niðurstöðu úr PCR-prófi fyrir brottför á leið til Íslands og á landamærum við komuna. Kemur sú ráðstöfun til viðbótar kröfu um tvöfalda skimun. Frá sama tíma verður þeim sem greinast með Covid-19 við skimun á landamærum skylt að dvelja í sóttvarnahúsi ef önnur viðunandi aðstaða til einangrunar er ekki fyrir hendi eða ef einstaklingur er með afbrigði veirunnar sem eru þekkt fyrir að vera meira smitandi en önnur eða valda alvarlegri veikindum. Heilbrigðisráðherra kynnti ákvörðun þessa efnis á fundi ríkisstjórnar í dag og er hún í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis um hertar aðgerðir á landamærum.

57 hafa framvísað vottorði en 9 þeirra hafnað

Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra leggur hann einnig til að horfið verði frá því að veita þeim undanþágu frá sóttvarnaráðstöfunum á landamærum sem framvísa gildu vottorði um að þeir hafi verið bólusettir gegn Covid-19. Heilbrigðisráðherra fellst ekki á þessa tillögu sóttvarnalæknis að svo stöddu og telur hana þarfnast nánari skoðunar. Reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um framvísun bólusetningarvottorða á landamærum og kröfur sem gerðar eru til þeirra svo gild teljist tók gildi 15. janúar síðastliðinn. Síðan þá hafa 57 einstaklingar framvísað bólusetningarvottorðum og af þeim vottorðum hefur 9 verið hafnað. 

„Ráðherra tekur undir með sóttvarnalækni að staða faraldursins innanlands gefi tilefni til að slaka frekar á takmörkunum innanlands. Það býður hins vegar þeirri hættu heim að ef smit leka frá landamærum gæti ný bylgja faraldursins farið hratt af stað ef litlar takmarkanir verða á samkomum fólks innanlands. Það er því mat ráðuneytisins að rétt sé að bregðast við tillögum sóttvarnalæknis og grípa til tiltekinna ráðstafana á landamærum til viðbótar þeim sem eru nú þegar í gildi til að draga eins og unnt er úr hættunni á því að smit berist gegnum landamærin og inn í samfélagið,“ segir á vef heilbrigðisráðuneytisins. 

Tillögur Þórólfs

Krafa um tvöfalda skimun á landamærum þar sem skimað er við komuna og aftur fimm dögum síðar að undangenginni sóttkví verður óbreytt. Eftirfarandi aðgerðir koma til viðbótar þessari kröfu.

  • PCR-próf: Allir sem koma til landsins þurfa að sýna vottorð um neikvætt PCR-próf gegn SARS-CoV-2 áður en þeir stíga um borð í flugvél eða skip á leið til landsins og einnig við komuna til Íslands. Prófið verður að hafa verið tekið innan við 72 klukkustundum fyrir brottför. Einungis eru tekin gild vottorð sem eru á ensku eða einhverju Norðurlandamálanna, öðru en finnsku, og uppfylla skilyrði meðfylgjandi reglugerðar. Niðurstöður rannsóknar ber að forskrá rafrænt ásamt öðrum upplýsingum fyrir brottför á leið til Íslands.
  • Sóttkví í sóttvarnahúsi: Einstaklingum með jákvæða niðurstöðu í fyrstu skimun á landamærum verður gert að dveljast í sóttvarnahúsi ef sýnt þykir að viðunandi einangrunar-/sóttkvíaraðstaða sé ekki fyrir hendi. Þeim sem greinast með þau afbrigði veirunnar sem eru meira smitandi en önnur afbrigði og/eða valda alvarlegri sjúkdómi verður gert að dvelja í sóttvarnahúsi skilyrðislaust.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert