Vakta 35 staði í hlíðinni

Frá Seyðisfirði eftir skriður sem féllu þar í desember.
Frá Seyðisfirði eftir skriður sem féllu þar í desember. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við erum alls með 35 staði sem vaktaðir eru í hlíðinni til þess að fylgjast með hvort einhver hreyfing komi fram,“ segir Tóm­as Jó­hann­es­son, sér­fræðing­ur á of­an­flóðavakt Veður­stofu Íslands. Um 100 íbúar í 46 húsum á Seyðisfirði rýmdu hús sín undir kvöld vegna skriðuhættu.

Húsin eru rýmd vegna þess að mikilli rigningu er spáð og óvissa er um stöðugleika hlíðanna í Botnabrún eftir skriðuföllin í desember.

Tómas segir stöðuna óbreytta. Byrjað er að rigna en engin ummerki eru um hreyfingu í mælabúnaðinum í hlíðinni.

Tómas segir að rýmt sé í öryggisskyni þar til meiri reynsla fáist á stöðugleika hlíðarinnar.

„Ef engin hreyfing mælist núna þá verðum við róleg með ámóta rigningu og leysingu héðan í frá.

Rýming verður endurmetin á morgun en þá á að draga úr rigningu og kólna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert