96% fjölgun kynferðisbrota

AFP

Mikil fjölgun var á skráðum kynferðisafbrotum á höfuðborgarsvæðinu í janúar en það má einna helst rekja til aðgerða lögreglunnar í vændismálum. Alls voru skráð 68 kynferðisbrot í mánuðinum en það sem af er ári hafa verið skráð um 96% fleiri kynferðisbrot en voru skráð að meðaltali á sama tímabili síðastliðin þrjú ár á undan. 

Undanfarnar vikur hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH) verið í sérstökum aðgerðum tengdum mansali en vændi er ein af birtingarmyndum mansals. Þetta er einn af þeim þáttum í skipulagðri brotastarfsemi sem LRH leggur mikla áherslu á. 

Í janúar bárust lögreglunni 30 tilkynningar um kynferðisbrot sem áttu sér stað í janúar. Það sem af er ári hafa borist um 18 prósent fleiri tilkynningar um kynferðisbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili síðastliðin þrjú ár á undan. Tilkynningarnar um kynferðisbrot í desember voru 75 talsins. 

Skráð voru 666 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í janúar og fækkaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir janúar 2021.

75 tilkynningar um heimilisofbeldi í janúar

Skráðum ofbeldisbrotum fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum um heimilisofbeldi. Alls bárust 75 tilkynningar um heimilisofbeldi í janúar. Það sem af er ári hafa borist 22% fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi en bárust að meðaltali á sama tímabili síðastliðin þrjú ár á undan. Á síðasta ári voru heimilisofbeldismálin flest í apríl eða 81. 

Alls voru tilkynnt 106 ofbeldisbrot í janúar og tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi fjölgaði einnig á milli mánaða.

Alls bárust 24 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í janúar og fjölgar þessum beiðnum á milli mánaða. Það sem af er ári hafa borist um 16% fleiri leitarbeiðnir en bárust að meðaltali á sama tímabili síðastliðin þrjú ár á undan. Í desember bárust 16 leitarbeiðnir en í fyrra voru þær flestar í júní eða 25 talsins. 

Færri fíkniefnabrot og þjófnaðir

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða og voru fimm stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í janúar. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fækkaði á milli mánaða en tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði. Alls voru skráð 135 brot þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna í janúar. Af þeim voru 66 ölvaðir undir stýri. 

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði töluvert á milli mánaða sem og tilkynningum um innbrot. Það sem af er ári hafa borist um 16 prósent færri tilkynningar um þjófnaði og um 15 prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Í desember voru skráð 646 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 16 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.

Hegningarlagabrotin eru langflest á löggæslusvæði 1, það er á Seltjarnarnesi, miðborg, Vesturbæ, Háaleiti, Hlíðum og Laugardal, eða 375 talsins. Ef lögð eru saman hegningarlagabrot annars staðar á höfuðborgarsvæðinu eru þau alls 273 talsins. En þetta er hægt að skoða nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert