Hættustigi á Seyðisfirði aflýst

Frá Seyðisfirði eftir að stórar aurskriður féllu þar í desember.
Frá Seyðisfirði eftir að stórar aurskriður féllu þar í desember. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi og Veðurstofu Íslands, hefur aflýst hættustigi á Seyðisfirði vegna hættu á skriðuföllum.

Rýmingu hefur verið aflétt á þeim íbúðarhúsum sem voru rýmd í gær og íbúar geta því snúið heim, að því er kemur fram í tilkynningu. 

Um eftirtalin hús er að ræða:

  • Öll hús við Botnahlíð
  • Múlavegur 37
  • Baugsvegur 5
  • Austurvegur 36, 38b, 40b, 42, 44, 44b, 46b, 48, 50, 52, 54 og 56
  • Fossgata 4, 5 og 7
  • Múli, Hafnargata 10, 11, 12, 14, 15, 16b og 18c

Dregið hefur úr rigningu og gerir veðurspáin ráð fyrir úrkomulitlu og kólnandi veðri fram á föstudag. Ekki er vitað til þess að ofanflóð hafi fallið frá því á mánudag.

Á Seyðisfirði er uppsöfnuð úrkoma rúmlega 100 millimetrar frá því á laugardag sem er það mesta sem komið hefur frá skriðuhrinunni í desember. Mælingar í borholum í Neðri-Botnum sýndu nokkuð hraða hækkun á vatnsborði á sunnudag en nú hefur dregið úr henni. Mælingar á hreyfingu jarðlaga með alstöð og sjálfvirkum GPS stöðvum sýna enga markverða hreyfingu.

Í tilkynningunni segir að það sé góðs viti að þetta veður skuli ekki hafa valdið óstöðugleika í jarðlögum hlíðarinnar og þess vegna er ekki reiknað með því að það þurfi að grípa til sambærilegrar rýmingar á Seyðisfirði nema úrkoma og leysing verði nokkru meiri en nú varð. Mælitæki til þess að vakta aurskriðuhættu í hlíðinni, sem komið hefur verið fyrir á undanförnum vikum, reyndust vel.

Auk þess hefur óvissustigi vegna hættu á ofanflóðum verið aflýst á Austfjörðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert