Kom móð og másandi í þingsal

Sara Elísa Þórðardóttir, þingmaður Pírata, kom móð og másandi í ræðustól á Alþingi þegar hún mælti fyrir þingsályktunartillögu um aðgerðir vegna rakaskemmda í fasteignum í dag. 

Sara hafði komið á hlaupum í þingsal en þurfti skamma stund til að jafna sig á mæðinni. 

Það vakti athygli í febrúar 2019 þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nú dómsmálaráðherra mætti á miklum hlaupum í þingsal þegar hún fékk sitt fyrsta frumvarp samþykkt á Alþingi. 

Síðari umræða um þingsályktunartillögu um aðgerðir vegna rakaskemmda í fasteignum fór fram í dag, en atkvæðagreiðslu um málið var frestað. 

Sara Elísa Þórðardóttir á Alþingi.
Sara Elísa Þórðardóttir á Alþingi. Skjáskot/Alþingi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert