Eins og heróínfíkill í fráhvörfum

Nikótínpúðar hafa leyst af hólmi neftóbakið að miklu leyti. Oft …
Nikótínpúðar hafa leyst af hólmi neftóbakið að miklu leyti. Oft er nikótíninnihaldið í púðunum mun meira en í öðrum tóbaksvörum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ungur maður á þrítugsaldri, sem kýs að koma ekki fram undir nafni, segir nikótínpúðana ákaflega vanabindandi og þráir að hætta notkun þeirra. Við köllum hann hér í greininni Jón.

„Ég hef mikla reynslu af notkun nikótínpúða. Ég hef notað þá síðan október 2019, þegar þeir komu fyrst á markaðinn. Áður var ég að nota íslenska neftóbakið í vör,“ segir Jón sem í dag er 28 ára.

100% háður þessu

Jón segist aldrei hafa reykt en byrjaði að fikta við tóbakið um átján ára.

„Fyrst byrjaði ég á að nota sprautu sem maður þjappaði tóbaki í og sprautaði undir vör. En það var svo subbulegt að ég byrjaði að búa til litla púða úr pappír. Allir vinir mínir voru að gera þetta á þessum tíma. Þegar Lyft-púðarnir komu á markaðinn skipti ég strax yfir enda er þetta miklu hreinlegra og þægilegra og mér finnst styrkleikinn vera meiri,“ segir hann.

„Ég held þetta sé alveg jafn slæmt fyrir tennur og góminn og tóbakið. Ég er 100% háður þessu. Ég nota fjórar dollur á viku, eða svona 12-15 púða á dag. Hver dolla er á svona 700 krónur, sem er líka mun ódýrara en íslenska tóbakið.“

Fékk hita og uppköst

„Það fyrsta sem ég geri á morgnana er að bursta tennur, fá mér morgunmat og svo fæ ég mér púða. Ég er með hann í svona fjörutíu mínútur og tek þá svona hálftíma pásu og fæ mér svo næsta. Ég fæ meira kikk út úr þessu en íslenska tóbakinu,“ segir hann.

Hægt er að kaupa púða með háu magni af nikótíni. …
Hægt er að kaupa púða með háu magni af nikótíni. Einn púði jafngildir þá um þremur sígarettum. mbli.is/Eggert Jóhannesson

Nú ert þú heilbrigður ungur maður, af hverju ertu að þessu?

„Úff. Mig langar sko alls ekki að vera að þessu. Ég er kominn með ógeð á þessu og er alltaf með plan um að hætta. Alveg eins og fólk sem reykir.“

Hefurðu reynt að hætta?

„Já. Ég náði einu sinni þremur dögum. Ég fékk hita, uppköst og var veikur. Þetta voru rosaleg fráhvörf, eins og eiturlyfjasjúklingar upplifa. Ég hef lesið lýsingar heróínfíkla í fráhvörfum, mér leið bara þannig. Ég fór svo beint upp í búð, keypti mér dollu og lagaðist á innan við klukkutíma. Ég hef ekki reynt að hætta síðan. Þetta er rosalega sterkt. Þetta er eins og eiturlyf.“

Stelpur núna líka notendur

Eru allir vinir þínir að nota þetta?

„Já. Áður en þetta erlenda kom á markaðinn voru eiginlega bara strákar að nota þetta en nú hef ég tekið eftir að stelpur eru að nota púða líka. Það eru allar stelpur í Lyfti líka. Þetta sést varla þegar þú ert með þetta,“ segir hann.

„Allir vinir mínir nota þetta. Meira segja þeir sem snertu ekki íslenska tóbakið. Þeir byrjuðu því að nota nikótín kannski 25-26 ára,“ segir hann og hristir hausinn yfir því.

„Ég þarf að fara að hætta þessu, þetta gengur ekki lengur,“ segir Jón að lokum.

 Jón segist nota um einn púða á hverjum klukkutíma sem hann er á fótum, eða um 12-15 á dag.

Börn ánetjast fyrr

Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, sendi inn athugasemdir í samráðsgátt sem heilbrigðisráðuneytið opnaði vegna frumvarps um breytingu á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. Með breytingunni falla nikótínpúðar undir þessi lög. Lára telur breytingarnar alls ekki nægilegar.

Aðspurð hvers vegna hún hafi sent athugasemdir svarar hún:

„Hjartað tekur kipp þegar ég sé stefnu stjórnvalda stangast á við fræðin í lýðheilsumálum, því núverandi aðgerðir eru ekki með hagsmuni barna að leiðarljósi. Það eru vel þekktar leiðir til að halda ungdómnum frá fíkn og stjórnvöld eru að bregðast börnunum hvað nikótínið varðar. Nikótínvörurnar sem eru á almennum markaði í dag fást í styrkleika sem breyta hratt taugatengingum í óþroskuðum heila, sem veldur því að barn ánetjast jafnvel fyrr en ef það hefði byrjað að reykja. Það væri nær ógerlegt fyrir barn sem hefur aldrei notað nikótín að reykja þrjár sígarettur í einu – sem jafngildir sumum nikótínpúðum á markaðnum. Í Bandaríkjunum er til dæmis búið að banna eina af þessum nikótínvörum því nikótínmagnið var svo hátt,“ segir Lára, sem er þessa dagana búsett í Kaliforníu.

Jafn ávanabindandi og heróín

„Nikótín er álíka ávanabindandi og heróín og er yfirleitt fyrsta fíkniefni ungmenna. Þegar börn hafa ánetjast nikótíni er líklegra að þau leiðist út í önnur fíkniefni því það hefur áhrif á sömu taugatengingar í umbunarsvæði heilans,“ segir Lára og vill að í frumvarpinu verði níkótín flokkað sem sterkt ávanabindandi eiturefni.
„Nikótín er taugaeitur. Ef ungt barn setur nikótínpúða upp í sig getur það hæglega farið í öndunarstopp.“

Fólk fer strax í fráhvörf

Lára leggur einnig til að bragðefni í nikótínpúðum verði bannað og að aldurstakmark kaupenda verði 25 ára.

Í dag fást nikótínpúðar í verslunum og er gjarnan stillt …
Í dag fást nikótínpúðar í verslunum og er gjarnan stillt upp við hlið sælgætis. Ljósmynd/Hrönn Marinósdóttir

„Ef maður skoðar lífeðlisfræði heilans eru fáir sem ánetjast nikótíni eftir 25 ára aldur,“ segir Lára og bætir við:

„Nikótín brotnar svo hratt niður í líkamanum að neytandi þess fer strax í fráhvörf. Þessir púðar eru ekki til þess að láta fólki líða vel heldur fer notkunin á endanum að snúast um að minnka vanlíðan. Ég hef heyrt af unglingum sem eru að vakna á nóttunni til að skipta út púðum vegna fráhvarfa.“ 

Tuttugufaldur skammtur

Lára segir að eftirliti með seljendum sé verulega ábótavant en Neytendastofa hafi staðið sig vel.
„Það vantar alla umgjörð um sölu nikótíns. Eins og staðan er í dag þarf fólkið í landinu að vera löggan. Neytendastofa reiðir sig mikið til á okkur almenning til að koma upp um seljendur sem brjóta lög, eins og að rjúfa innsigli og selja nikótín í hærri styrkleika en lög gera ráð fyrir. Þetta er farið úr böndunum og ekki hægt að ætlast til að Neytendastofa geti tryggt að allir seljendur fylgi lögum, eins og bersýnilega hefur komið í ljós eftir að lög um rafsígarettur voru sett fyrir um tveimur árum. Það er ekki nóg að setja púðana undir rafrettulögin; þá þarf að flokka sem tóbak eða lyf. Allt nikótín ætti að vera flokkað annaðhvort sem tóbak eða lyf,“ segir Lára.

Lára vill strangari lög um nikótínpúða en nú eru í …
Lára vill strangari lög um nikótínpúða en nú eru í bígerð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Annað sem vert er að benda á er að samkvæmt lyfjalögum má bara selja tvö milligrömm af nikótíni í lausasölu en nú er hægt að kaupa tuttugufaldan skammt í lausasölu og á netinu. Og hver sem er getur ákveðið að selja nikótín, sama hvaða forsögu viðkomandi hefur.“

Ítarleg grein um nikótínpúða er í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 



 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert