Hálfur milljarður í heita potta

Á Fosshálsi. Kristján hyggst opna stærstu verslunina í sögu landsins …
Á Fosshálsi. Kristján hyggst opna stærstu verslunina í sögu landsins sem selur heita potta.

Athafnamaðurinn Kristján Berg Ásgeirsson, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, gerir sér vonir um að selja heita potta fyrir milljarð króna á þessu ári.

Hann undirbýr flutning pottasölunnar frá Höfðabakkanum yfir á Fosshálsinn og kostar til þess hálfum milljarði, að því er fram kemur í Morgublaðinu í dag.

Máli sínu til stuðnings vísar hann til þess að kórónuveirufaraldrinum sé ekki lokið, ásamt því sem gæði pottanna muni spyrjast út.

Nú séu kaldir pottar í tísku, sala á gufuböðum á uppleið og mikil þörf skapist fyrir endurnýjun á heitum pottum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert