Heiðruðu minningu Johns Snorra og félaga

Íbúar Skardu heiðra minningu Johns Snorra og félaga.
Íbúar Skardu heiðra minningu Johns Snorra og félaga. Af Facebook

Minningarathöfn var haldin um John Snorra Sigurjónsson, Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr í borginni Skardu í Pakistan í gærkvöldi. Þremenninganna hefur verið saknað á fjallinu K2 frá 5. febrúar og eru mennirnir formlega taldir af. 

Kerti voru lögð eftir götum Skardu-borgar þar sem myndir af fjallgöngumönnunum þremur höfðu verið settar upp. 

Lína Móey Bjarnadóttir, eiginkona Johns Snorra, þakkaði Skardu fyrir athöfnina. Þá þakkaði Sajid Ali Sadpara, sonur Alis sem var síðastur til að sjá þremenningana, Skardu einnig fyrir að heiðra minningu félaganna. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert