58 af 706 án vottorðs á landamærum

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Af 706 farþegum sem komu til landsins um helgina voru 58 þeirra ekki með neikvætt PCR-próf vegna Covid-19 eða gild vottorð vegna smits eða bólusetningar. 543 farþegar voru með gild próf, 51 með vottorð fyrir sýkingu og 54 með vottorð vegna bólusetningar.

Þetta kom fram í máli Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns á upplýsingafundi almannavarna.

Nýjar reglur á landamærunum tóku gildi á miðnætti á föstudagskvöld. Ann­ars veg­ar er gerð krafa um að fólk fram­vísi nei­kvæðu PCR-prófi á brott­far­arstað og hins veg­ar hef­ur fram­kvæmd ým­issa atriða verið bætt.

Má þar nefna víðtæk­ari heim­ild­ir til að fólki sé gert að fara í far­sótt­ar­hús, svo sem ef viðkom­andi er smitaður af bráðsmit­andi af­brigði eða get­ur ekki gefið upp nægj­an­lega góðar upp­lýs­ing­ar um bú­setu í sótt­kví. 

Víðir sagði að tilmæli varðandi sektir vegna þeirra sem ekki koma með neikvætt PCR-próf séu enn í vinnslu hjá ríkissaksóknara. Hann sagði að tilmæli myndu líklega taka gildi um miðja viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert