352 tilkynningar vegna gruns um aukaverkanir

Ljósmynd/Lyfjastofnun

Alls hafa Lyfja­stofn­un Íslands borist 352 til­kynn­ing­ar vegna gruns um auka­verk­an­ir í kjöl­far bólu­setn­ing­ar gegn Covid-19. Þar af eru 168 til­kynn­ing­ar vegna bólu­efn­is Pfizer/BioNTech, 120 vegna bóluefnis Moderna og 64 vegna bólu­efn­is AstraZeneca. Átján til­kynn­ing­anna eru al­var­leg­ar. 

Þetta kem­ur fram á vefsíðu Lyfja­stofn­un­ar. 

Engar alvarlegar tilkynningar hafa borist vegna bóluefnis AstraZeneca, þrjár vegna bóluefnis Moderna og 15 vegna bóluefnis Pfizer/BioNTech. 

Graf/Lyfjastofnun

Beinn sam­an­b­urður ómögu­leg­ur

Hafa ber í huga að flestir hafa verið bólu­sett­ir með bólu­efni Pfizer. 

„Þar sem bólu­efn­in ber­ast ekki á sama tíma er óhjá­kvæmi­legt að hóp­ar mis­mun­andi að sam­setn­ingu fái ólík bólu­efni. Það ger­ir bein­an sam­an­b­urð milli þeirra ómögu­leg­an. Í fyrstu for­gangs­hóp­um bólu­setn­ing­ar er meðal ann­ars heil­brigðis­starfs­fólk, en því ber skylda til að til­kynna um auka­verk­an­ir sam­kvæmt lyfja­lög­um og  hef­ur þessi skylda áhrif á fjölda til­kynn­inga, og þá til fjölg­un­ar þeirra, að mati Lyfja­stofn­un­ar,“ seg­ir á vef Lyfja­stofn­un­ar og jafn­framt:

„Auk heil­brigðis­starfs­manna eru aldraðir ein­stak­ling­ar fremst­ir í for­gangi bólu­setn­ing­ar. Marg­ir þeirra hafa und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Því má bú­ast við fleiri til­kynn­ing­um vegna bólu­setn­ing­ar í þeim hópi, en hins veg­ar þarf ekki að vera um or­saka­sam­band að ræða milli bólu­setn­ing­ar og til­kynntra til­vika. Slíkt er metið í hverju til­felli fyr­ir sig.“

Á vef Lyfja­stofn­un­ar kem­ur einnig fram að mik­il­vægt sé að hafa hug­fast að fjöldi til­kynn­inga vegna gruns um auka­verk­un segi ekki til um tíðni raun­veru­legra auka­verk­ana eft­ir bólu­setn­ingu eða ör­yggi bólu­efna.

„Slík­ar til­kynn­ing­ar eru notaðar til að fylgj­ast með ör­yggi lyfja eft­ir að notk­un þeirra hefst og er það gert m.a. með því að meta hvort lík­ur séu á því að or­saka­sam­band sé milli lyfja­notk­un­ar og þess til­viks sem til­kynnt er. Þannig er ekki víst að til­kynn­ing­arn­ar end­ur­spegli raun­veru­leg­ar auka­verk­an­ir af bólu­efn­un­um en það er metið í hverju til­felli fyr­ir sig.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert