Áhrifaríkara en orð fá lýst

Guðmundur Felix Grétarsson kveðst hafa tárast yfir því að sjá …
Guðmundur Felix Grétarsson kveðst hafa tárast yfir því að sjá sjálfan sig á þessari mynd. Ljósmynd/Facebook

Guðmundur Felix Grétarsson birtir mynd af sér á Facebook í dag þar sem vart er að sjá að hann hafi nokkru sinni vantað hendur. Sárabindi hvers konar eru hvergi nærri og hann liggur í makindum sínum með nýju hendurnar.

„Þegar þú hefur verið án handa í 23 ár er áhrifaríkara en orð fá lýst að sjá svona mynd af sjálfum þér,“ skrifar Guðmundur Felix í mynd með færslunni.

Guðmundur er kominn á ról og fór til að mynda í fyrsta sinn út fyrir hússins dyr um helgina, eftir að hafa verið meira og minna rúmliggjandi frá byrjun árs.

Að mati Guðmundar er árangur fólginn í því einu að sjá sjálfan sig heilbrigðan á að líta, eins og á myndinni sem hér ræðir um. Hann hafi lært á sínum tíma að lifa með fötlun sinni, „en ég væri að ljúga ef ég héldi því fram að mér hafi líkað hún,“ skrifar Guðmundur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert