Biðu eftir að fá skápinn í fangið (Myndskeið)

Stofuskápur, stofustáss og sófi fóru af stað á heimili Viktoríu Lífar í Asparfelli í Breiðholti þegar jörð hóf að skjálfa í morgun. Þá segist Viktoría, sem býr í grennd við leikskóla, hafa heyrt öskur og óp í leikskólabörnum þegar stærsti skjálftinn varð á ellefta tímanum í morgun. 

Mik­ill fjöldi skjálfta hef­ur skekið jörð á suðvest­ur­horn­inu, sá stærsti 5,7 að stærð, á síðasta klukku­tím­an­um. Skjálftinn átti upp­tök sín 3,3 kíló­metra suð-suðvest­ur af Keili á Reykja­nesi.

„Við erum uppi á sjöundu hæð svo það var kannski ekkert skrýtið að við fyndum svona mikið fyrir þessu,“ segir Viktoría í samtali við mbl.is. Aðspurð segist hún hafa orðið svolítið hrædd.

„Skápurinn, sem var alveg upp við vegginn, hristist frá veggnum. Við biðum bara eftir því að fá hann í fangið.“ 

Viktoría og fjölskylda hennar ákváðu að grípa til varúðarráðstafana eftir að stóri skjálftinn varð og koma skápnum, stofustássinu og sófanum betur fyrir.

Í myndskeiðinu hér að ofan má sjá hvernig heimili Viktoríu hristist í skjálftanum. 

„Skápurinn, sem var alveg upp við vegginn, hristist frá veggnum. …
„Skápurinn, sem var alveg upp við vegginn, hristist frá veggnum. Við biðum bara eftir því að fá hann í fangið.“ Úr myndskeiðinu
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert