Fékk loftplötu í höfuðið

Höfuðstöðvar Landsbankans í miðbæ Reykjavíkur.
Höfuðstöðvar Landsbankans í miðbæ Reykjavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Starfsmaður í höfuðstöðvum Landsbankans í Austurstræti í Reykjavík varð undir loftplötu sem losnaði í skjálftanum stóra sem fannst víða á suðausturhorninu í dag.

Konan fékk plötuna í höfuðið og fékk af því sár. Hún var flutt á heilsugæslu þar sem gert var að sárinu og hún skoðuð að sögn Rúnars Pálmasonar, upplýsingafulltrúa Landsbankans. 

Konan er ekki mikið slösuð og snéri til vinnu eftir heimsókn á heilsugæslu.

Rúnar segir of snemmt að segja til um hvort skipta þurfi út plötum í loftinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert