Hvítir gufustrókar sjást á svæðinu

Myndin er tekin úr könnunarflugi Gæslunnar. Sjá má stróka neðarlega …
Myndin er tekin úr könnunarflugi Gæslunnar. Sjá má stróka neðarlega á myndinni. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Grjót hefur hrunið úr fjöllum á Reykjanesi og hvítir gufustrókar frá jarðhitasvæðum hafa sést á svæðinu. 

Veðurstofa Íslands hefur hækkað litakóða fyrir flug á Reykjanesi yfir á gult og er það samkvæmt verklagsreglum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum eftir að hættustigi var lýst yfir.

Varað við grjóthruni

Lögreglan á Suðurnesjum fer núna um svæðið til að kanna áhrif skjálftans. Þá hefur áhöfn á þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið yfir Reykjanes til að kanna aðstæður. 

Skjálftarnir hafa fundist víða á Suðvesturhorninu og allt norður í Húnaþing og vestur á Ísafjörð. Varað er við grjóthruni á Reykjanesskaga á meðan á hrinunni stendur. Unnið er að nánari yfirferð á skjálftavirkni.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fylgist vel með í samvinnu við lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum og Veðurstofu Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert