Sprengjuhótun við MH

Frá aðgerðum lögreglu við MH.
Frá aðgerðum lögreglu við MH. mbl.is/KHJ

Sprengjuhótun barst Menntaskólanum í Hamrahlíð í morgun og er lögreglan að leita sprengjunnar. Kennsla hefur verið felld niður að minnsta kosti fram að hádegi.

Greint er frá þessu á vef RÚV.

Samkvæmt blaðamanni mbl.is á vettvangi var sérsveitin og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í og við skólann. Lögregluþjónar voru með sprengjuleitarhund.

Í tölvupósti sem Steinn Jóhannsson rektor sendi nemendum og forráðamönnum kemur fram að kennsla falli niður af óviðráðanlegum orsökum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert