Áfram í gæsluvarðhaldi

Gæsluvarðhald hefur verið framlengt.
Gæsluvarðhald hefur verið framlengt. Mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir manni til 5. mars í tengslum við rannsókn á Rauðagerðismálinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. 

„Einn var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi vikulangt gæsluvarðhald, eða til föstudagsins 5. mars, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni um þar síðustu helgi,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert